Það rann upp fyrir mér um daginn þegar ég var í fatabúð hvað ég hef saknað þess að eiga og klæðast almennilegum fötum. Eftir rúm 3 ár í Flatalandi þá var ég farin að halda að ég væri orðin kelling því ég gat aldrei fundið mér föt sem mig langaði virkilega að klæðast. Allt var of þunnt og tuskulegt. Ég bara skyldi þetta ekki og það var ekki fyrr en fyrir 2 vikum að ég áttaði mig. Í Flatalandi eru seld sumarföt allan ársins hring í búðum.
Í uppvextinum minnist ég þess ekki að hafa átt einhver sér sumar eða vetrarföt. Maður bara lagði úlpunni og húfunni þegar fór að hlýna og var bara á peysunni og ef það hlýnaði ennþá meira þá lagði maður peysunni. Svo þegar virkilega heitt var úti þá fór maður bara í leikfimisfötin :)
Í Noregi verða vetrar kaldir og vetrartískan komin í búðir og þvílíkur léttir. Mér finnst ég ekki vera kelling lengur.
ha ha já - man eftir því þegar fór að hlýna þá lagði maður úlpunni :) minnist nú samt ekki að í Mývó hafi orðið leikfimifatahlýtt úti ha ha ha
ReplyDeleteNei gerðist mjög sjaldan :) Þess vegna sem maður man svo vel eftir því hehehehehee Sprangandi um á rauðum blakstuttbuxum með hvítri rönd hehehehe myndi ekki fyrir mitt litla líf klæða mig í leikfimisfötin núna ;)
ReplyDelete