Dagurinn í dag byrjaði ekki vel. Ég svaf yfir mig. Fannst það soldið absúrt að hringja í yfirmanninn klukkutíma áður en ég átti að mæta í vinnuna til að segja honum að ég hefði sofið yfir mig og að ég yrði þar af leiðandi of sein. Málið er að ég þarf að minnsta kosti klukkutíma og fjörtíu mínútur til að komast til vinnu.
Svava mín var sem betur fer í góðu formi í morgun (hún á það til að vera svoldið morgunstygg) og allt gekk snuðrulaust fyrir sig og með því að keyra eins og rallýkappi eftir norska sveitaveginum þá var ég ekki nema hálftíma of sein.
Vinnan gengur vel, er svoldið tungumála villt samt. Blanda svoldið mikið saman. Getur verið svoldið erfitt að vera margtyngd á stundum. Íslenska og enska heimafyrir og svo norska og danska og enska í vinnunni. Næ samt að gera mig skiljanlega. Það eru helst danirnir sem hvá, en ég segi bara við þá "Ég skil þig, skilur þú mig ekki" og þá allt í einu er allt í lagi ;) Svo þegar allt er komið í hnút segi ég bara "Augnablik, tölvan er mjög hæg í augnablikinu" og svo nota ég augnablikið óspart á Google translate til að finna þýðingar fyrir orðin sem ég leita eftir. Merkilegt hvað maður verður vitur þegar maður hefur aðgang að Google. Elska Google.
Annars er ég að leita eftir annarri vinnu þar sem að ég veit ekki hvort það verður áframhald á þessarri eftir reynslutímabilið. Nú er bara að krossa fingur og vona það besta.
No comments:
Post a Comment