Góður svefn lagar allt. Sofnaði með snúllunni minni í gær klukkan 20. Var greinilega gjörsamlega uppgefin. Var frekar hissa þegar ég vaknaði í morgun ennþá fullklædd en algjörlega endurnærð. Snúllan mín líka í svona góðu skapi og himinlifandi yfir að vera að fara á leikskólann. Þótt að skafa þyrfti bílinn og hitamælirinn sýndi -4 gráður þá voru mjög ánægðar og vel dúðaðar mæðgur sem löguð af stað út í daginn fyrir klukkan 7 í morgun. Allt svo bjart, gott og gaman í dag.
Áður en við sofnuðum í gær þá sönglaði dóttirin"Stína, fína, appelsína" og hló dátt og svo heyrðist "Sorry, þú heitir ekki Stína" og hló ennþá hærra. Þetta finnst henni geggjað fyndið og ef ég endurtek þá heyrist "Silly mommy!" Hún ætlar greinilega að erfa fíflaskapinn frá móðurinni :) og mér finnst það sko ekkert leiðinlegt. Svo gaman að geta bullað út í eitt og hlegið að því sérstaklega í svona góðum félagsskap ;)
No comments:
Post a Comment