Fór í matvörubúðina í hádeginu og hvað blasti við mér á leiðinni frá salatbarnum að kassanum? Freyju Lakkrís Draumur!!! Vá hvað ég varð að fá mér!!! Stóðst alveg undir væntingum sko :) Vona að þetta sé bara byrjunin á sölu íslenskt sælgætis í útlöndum, heimurinn má sko alveg við því að kynnast alvöru gotteríi.
Helgin var góð, fórum í sund... sem er kannski ekki frásögu færandi, en það var rennibraut á svæðinu, pabbinn fór fyrst með litlu snótina og þurftu þau að skríða út úr rörinu síðasta spölinn. Nú var komin röðin að mér að fara næstu ferð með barnið (vil taka það fram að mér hefur alltaf fundist svona rennibrautir hin mesta skemmtun). Við hlupum upp og ekki mátti á milli sjá hvor var spenntari mamman eða barnið. Til að gera langa sögu stutta þá var móðirn ég í andlegu sjokki þegar niður var komið, svo mikið var sjokkið að ég brast í grát. Svona sjokk grát blandað hlátri meðan litla dýrið hoppaði upp og niður og sagði "Again. Again. Again"
Hraðinn var sem sagt svona rosalegur að við skutumst út á methraða og tíma. Það er sekúndumælir í loftinu sem sýnir hversu lengi þú varst í brautinni. Fyrsta ferð pabbans og barnsins tók 24 sekúndur í samanburði við mína ferð með barnið tæpar 9 sekúndur. Getið ímyndað ykkur hraðann og rennibrautin 55 metrar á lengd. Er ennþá í smá sjokki.
hahaha sé ykkur alveg myndrænt þarna í rennibrautinni.. :) knús
ReplyDelete